Stjórnin í hættu nema Svandís skipti um stól

Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð …
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir einu sjáanlega lausnina að Svandís fari í annað ráðuneyti áður en þing kemur saman á ný. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mikill kurr er meðal þingmanna í samstarfsflokkum Vinstri-grænna eftir að álit umboðsmanns Alþingis kom fram um fyrirvaralaust hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra liðið sumar. Sérstaklega þó vegna viðbragða ráðherrans og flokks hennar, sem virðast ætla að láta sér niðurstöðu umboðsmanns í léttu rúmi liggja.

Komi fram vantrauststillaga á matvælaráðherra er ósennilegt að margir þeirra vilji verja ráðherrann vantrausti, en verði slík tillaga samþykkt er alls óvíst að stjórnarsamstarfið lifi það af. Má raunar heita ósennilegt.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem Morgunblaðið ræddi við, eru mun afdráttarlausari í sinni afstöðu, en hljóðið er einnig þungt í framsóknarmönnum.

Þeir eru þó ófúsir til þess að láta nokkuð hafa eftir sér, en óskað var eftir því að þeir væru sparir á yfirlýsingar fyrsta kastið. Bæði til þess að Vinstri-grænir næðu áttum í málinu, en einnig svo forystumönnum ríkisstjórnarinnar gæfist ráðrúm til þess að ræða það frekar.

Stólaskipti eina lausnin

„Ég veit ekki um einn einasta þingmann í mínum flokki, sem myndi verja Svandísi vantrausti sem matvælaráðherra,“ sagði einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við blaðið, en flestir þingmenn telja blasa við að vantrauststillaga komi fram á fyrstu dögum þingsins.

„Eina sjáanlega lausnin er að hún fari í annað ráðuneyti og það er ekki mikill tími til stefnu áður en þingið kemur aftur saman.“

Annar stjórnarþingmaður taldi að innri spenna hjá Vinstri-grænum skipti máli í þessu, Svandís væri áhrifamikil innan flokks síns. Vandinn væri einnig sá að þar á bænum virtust ekki allir, þar á meðal Svandís sjálf, gera sér grein fyrir því hvílík alvara væri á ferðum.

„Ég held að það sé rétt að þau geri sér grein fyrir því hver staðan raunverulega er. Ég held þau trúi því ekki.“

Annar sagði þessi vandræði hins vegar vekja alvarlegar spurningar um stöðu forsætisráðherra.

„Er það virkilega svo, að Katrín Jakobsdóttir sé í svo veikri stöðu sem formaður Vinstri-grænna og forsætisráðherra, að hún geti ekki látið einn léttan ráðherrakapal ganga upp?“

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,62 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,62 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »