Myndband: 6 tíma þolakstur á mótorhjólum

Klausturkeppnin 2014 fór fram um síðustu helgi, en það er sex tíma þolaksturskeppni á mótorhjólum. Rúmlega 270 keppendur tóku þátt í um 130 liðum.

Brautin, sem er 15–16 km löng, þykir eins og best verður á kosið. Bæði liggur hún um skemmtilegt landslag og eins er hún sendin og lítið um grjót.

Nú hefur styrktaraðili mótsins, Red Bull, birt skemmtilegt myndband um keppnina þar sem hægt er að upplifa stemminguna í keppninni og heyra hvað keppendur höfðu að segja.

Njótið.

Transatlantic Offroad Challenge 2014 | Klaustur 2014 from Red Bull Iceland on Vimeo.

mbl.is