Atriði sem geta aukið öryggi í vetur

Tími rúðusköfunnar er runninn upp.
Tími rúðusköfunnar er runninn upp. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Hörku vetrarveður skellur á landsmönnum í dag. Tími rúðusköfunnar runnin upp og annarra ráðstafana sem geta aukið á öryggi vegfarenda í vetur. 

Þannig er mikilvægt að hjólbarðar séu góðir heilsárs- eða vetrarhjólbarðar með góðu mynstri, réttum loftþrýstingi og að þeir hæfi aðstæðum. Um næstu mánaðarmót, 1. nóvember, verður sú breyting á reglum að lágmarksdýpt í mynstri hjólbarða má ekki vera minni en 3mm og gildir það fram til 14. apríl. Á milli 15. apríl og 31. október má mynsturdýptin ekki vera meira en 1,6mm.

Með því að tjöruhreinsa dekk reglulega yfir vetrartímann eykst veggrip þeirra mikið. Tjaran myndar hála húð á mynstri hjólbarðanna sem mikilvægt er að hreinsa af.

Þess skal gætt að hreinsa snjó vel af öllum bílnum áður en lagt er af stað, sérstaklega af rúðum og ljósum og ljósin þurfa að vera í lagi.  

Gæta þarf að því að þurrkublöð séu óskemmd og gott er að hreinsa tjöru af þeim líkt og hjólbörðunum.

Hafa þarf nægan rúðuvökva og passa að hann sé frostþolinn.

Nagladekk eru leyfileg frá 1.nóvember til 14.apríl, en bönnuð utan þess tíma nema aðstæður gefi tilefni til annars.

Þá getur skipt sköpum að í bílnum sé hlýr fatnaður sem hægt er að bregða sér í ef á þarf að halda.

Gluggaskafa, snjóskófla og handkústur eru verkfæri sem ættu alltaf að vera til staðar ef pláss er fyrir hendi. Auk þess borgar sig að hafa góð sólgleraugu tiltæk því sól er lágt á lofti og getur skert mjög útsýni yfir vetraramánuðina.

Loks ætti ekki þurfa taka fram, að mikilvægt er að aka ætíð í samræmi við aðstæður, draga úr hraða í hálku og hafa nægjanlegt bil milli bíla.

mbl.is