Yfir 1.000 bílar seldir það sem af er ári

Volker Mornhinweg, yfirmaður sendibíladeildar Mercedes-Benz og Dr. Dieter Zetsche, stjórnarformaður …
Volker Mornhinweg, yfirmaður sendibíladeildar Mercedes-Benz og Dr. Dieter Zetsche, stjórnarformaður Daimler AG, kynna nýjan Mercedes-Benz V-Class. mbl.is/afp

Salan hefur heldur betur gengið vel hjá Öskju það sem af er ári og 2014 er stærsta árið hjá fyrirtækinu frá stofnun, segir Jón Trausti Ólafsson framkvæmdastjóri.

„Það er eins og það sé kominn tíminn þegar þetta fer loks að gerast,“ segir Jón Trausti um ganginn í sölu nýrra bíla, en eins og vikulegt Bílablað Morgunblaðsins greindi frá fyrir skömmu náði Askja nýverið þeim áfanga að selja sinn þúsundasta bíl á árinu. „Enda er það löngu tímabært. Gengi krónunnar er nokkuð sterkt og stöðugt, miðað við það sem verið hefur, og góður horfur almennt í efnahagsmálum. Efnahagsumhverfið er allt að verða jákvæðara, trúi ég, og það er það sem fólk vill hafa á tilfinningunni þegar það fær sér nýjan bíl.“

Margt spennandi í kortunum

Að sögn Jóns Trausta hefur þetta ár gengið mjög vel, að því marki að árið 2014 er sterkasta ár Öskju frá upphafi. „Það sem af er ári höfum við selt um 700 Kia-bíla og 300 af Mercedes-Benz og þá erum við að tala um fólks- og atvinnubíla,“ segir Jón Trausti. Við höfum einnig verið að auka við okkar markaðshlutdeild sem er komin í 11,5%.“

Þegar talið berst að áhugaverðum nýjungum hjá Öskju segir Jón Trausti ýmislegt áhugavert vera á leiðinni. „Ef við byrjum Kia megin þá var nýr Sorento-jeppi kynntur á alþjóðlegu bílasýningunni í París, sem er gríðarlega spennandi bíll. Sorento hefur verið með okkar mest seldu bílum og notið mikilla vinsælda á Íslandi síðastliðin ár. Hann kemur á markaðinn snemma á nýárinu og er bíll sem við bindum miklar vonir við.“ Jón Trausti útskýrir að hinn nýi Sorento verði lengri en forverinn og með meira innanrými, eyðslan minnki enn frekar en samt sé sama vegfríhæð undir honum. „Þá verður hann fáanlegur bæði 5 og 7 manna, og sú útfærsla sem við munum leggja helsta áherslu á verður dísilbíllinn. Hann verður sjálfskiptur, rétt um 200 hestöfl og gríðarlega vel vandað til verka innanstokks þar sem efnisval og frágangur verður fyrsta flokks. Þetta er gríðarlega flottur bíll sem beðið er eftir.“

Rafmögnuð eftirvænting

Hin nýjungin frá Kia er ekki síður áhugaverð en þar á ferðinni 100% prósent rafmagnsbíll að nafni Soul.

„Þennan bíl munum við kynna hér á landi eftir 6 vikur eða svo. Hér er á ferðinni 2. kynslóð af Soul, hámarksdrægi hans er 212 kílómetrar þegar miðað er við kjöraðstæður. Hér á Íslandi er kannski rétt að nefna tölur á bilinu 140 til 160 kílómetrar, ekki síst þegar íslensku vetur er annars vegar,“ bætir Jón Trausti við. Bíllinn er um margt sérstakur í útliti og er það í takt við marga rafbíla; alltént virðist það ekki spilla fyrir eftirvæntingunni eins og Jón Trausti bendir á.

„Í Noregi var Kia Soul kynntur í ágúst og upphaflega stóð til að panta þangað 900 bíla. Fljótlega kom í ljós að þá tölu þurfti að endurskoða og var hún aukin í 2.000 bíla. Nýjustu tölur gera svo ráð fyrir að seldir verði 4.000 bílar af þessari gerð í Noregi á árinu 2015.“ Jón Trausti bendir í framhaldinu á að umhverfið til reksturs á rafbílum sé á margan hátt keimlíkt hér og í Noregi. „Við erum með sama kostnað af rafmagninu, hér á landi eru heldur ekki greidd vörugjöld af rafmagnsbílum og enn um sinn er ekki greiddur virðisaukaskattur af þeim heldur. Við munum því geta boðið þennan flotta bíl á samkeppnishæfu verði.“

Jeppar og atvinnubílar frá Benz

Það má með sanni segja að það hafi verið hrein flugeldasýning undanfarin ár í kynningu nýrra bíla hjá Mercedes-Benz þar sem hvert módelið á fætur öðru hefur verið kynnt til sögunnar. Jón Trausti segir að þessi mikli fjöldi spennandi útfærslna af þessum vönduðu þýsku bílum sé augljós ástæða þess hve vel bílarnir hafa selst hér á landi sem erlendis. „Núna í vetur kemur til að mynda nýr Benz B-Class sem verður nú í fyrsta sinn fáanlegur sem sjálfskiptur fjórhjóladrifinn með dísilvél. Það er nokkuð sem ég tel að muni henta mjög vel hér á Íslandi enda er hann í senn sparneytinn og rúmgóður. Auk þess hefur þetta módel verið vinsælt hjá okkur hingað til.“

Á næsta ári hefst svo nýtt jeppaár hjá Mercedes-Benz, að sögn Jóns Trausta, og er þá von á mörgum nýjum jeppum og jepplingum. „Til dæmis kemur nýr GLC-jeppi um mitt næsta ár, sem er arftaki GLK. Þá styttist í spennandi nýjungar í stóru jeppunum en það er best að bíða með þær fréttir uns nær dregur,“ segir Jón Trausti, kankvís á svip, enda veit hann sem er að ávallt ríkir eftirvænting eftir stóru jeppunum frá Benz. En meira fæst hann ekki til að láta uppi að svo stöddu.

En öðru máli gegnir um atvinnubílana og Jón Trausti er allur af vilja gerður til að upplýsa blaðamann um þá hlið mála. „Það er að koma algerlega ný lína af Mercedes-Benz og nefnast bílarnir Vito, Vito Tourer sem er hópferðabíll og svo V-Class sem er farþegabíll fyrir 6-8 farþega. Þessir bílar hafa lækkað talsvert hvað koltvísýringsgildið varðar og fyrir bragðið er verðið á þeim hagstætt. Þannig að veturinn framundan er fullur af nýjungum og því mjög spennandi, bæði í fólks- og atvinnubílum.“ jonagnar@mbl.is

Nýr Kia Sorento-jeppi kynntur á alþjóðlegu bílasýningunni í París, sem …
Nýr Kia Sorento-jeppi kynntur á alþjóðlegu bílasýningunni í París, sem er gríðarlega spennandi bíll. Sorento hefur verið með okkar mest seldu bílum og notið mikilla vinsælda á Íslandi síðastliðin ár,“ segir. Jón Trausti.
Rafútgáfa Kia Soul hefur slegið í gegn í Noregi og …
Rafútgáfa Kia Soul hefur slegið í gegn í Noregi og er væntanlegur til Íslands í haust.
Mercedes-AMG C 63 S er þýsk hönnun, afl og hugvit …
Mercedes-AMG C 63 S er þýsk hönnun, afl og hugvit í sinni reffilegustu mynd. Bíllinn er meðal nýjunga sem kynntar verða frá Mercedes-Benz þennan veturinn.
Jón Trausti Ólafsson.
Jón Trausti Ólafsson.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: