Vetrarríki í Öskju

Mercedes-Benz og Kia bílar verða til sýnis í Öskju á …
Mercedes-Benz og Kia bílar verða til sýnis í Öskju á laugardag. mbl.is/Árni Sæberg

Bílaumboðið Askja ætlar að fagna vetrinum með sérstakri vetrarsýningu nk. laugardag klukkan 12-16 þar sem öll lína Mercedes-Benz og Kia bíla verður til sýnis.

„Hin breiða lína Mercedes-Benz og Kia bíla er vel búin undir vetraraksturinn sem og allar árstíðir. Mercedes-Benz býður m.a. bíla sína með 4MATIC kerfinu sem er eitt öflugasta aldrifskerfi sem völ er á. Kia bílarnir hafa einnig komið vel út í kulda og snjó og eru flestir með hita í stýri, þannig að við höfum enga ástæðu til annars en að fagna vetri konungi og ætlum að gera okkur glaðan dag á laugardaginn,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju.

Boðið verður upp á sérstaka kaupauka með nokkrum nýjum bílum. Allir Mercedes-Benz og Kia bílar fá fría áfyllingu á rúðuvökva og ástandsskoðun á rúðuþurrkum og perum. Þá verður 20% afsláttur af rúðuþyrrkum og perum.

mbl.is