Land Rover Evoque með tuskutoppi

Talið er líklegt að blæjuútgáfa Range Rover Evoque sé innan …
Talið er líklegt að blæjuútgáfa Range Rover Evoque sé innan seilingar.

land Rover er að öllum líkindum að koma með blæjuútgáfu af hinum vinsæla Range Rover Evoque ef marka má frétt frá AutoExpress.

Síðasti jepplingur til að prófa þetta var Nissan Murano CrossCabriolet sem var gjörsamlega misheppnaður og seldist varla. Að sögn blaðamanns AutoExpress er slíkur bíll væntanlegur á sjónarsviðið seint á árinu. Talsvert hefur verið birt af njósnamyndum af þessum bíl sem rennir stoðum undir að hann sé brátt væntanlegur en spurningin er bara hvort Land Rover velji aftur Ísland fyrir kynningu á þessum bíl næsta sumar. njall@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: