Brimborg frumsýnir Citroen C4 Cactus

Citroën C4 Cactus.
Citroën C4 Cactus.

„Það gleður okkur að segja frá því að nú er komið að því að frumsýna hinn margumtalaða Citroën C4 Cactus. Hann hefur vakið gríðarlega athygli frá því að Citroën kynnti hann fyrst á bílasýningunni í París. Verðlaunin hafa hrannast upp en þau eru orðin 21 nú þegar!“

Þannig er komist að orði í fréttatilkynningu frá Brimborg um frumsýningu þess. Hún fer fram   laugardaginn næstkomandi, milli kl. 12 og 16,  í sýningarsal Citroën á Íslandi að Bíldshöfða 8, Reykjavík eða hjá Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5.

Ný hugmyndafræði Citroën býr að baki C4 Cactus og er ætlað að höfða til fjöldans. Ekkert prjál er í bílnum, einungis hlutir sem skipta máli nú til dags. Er bílnum lýst með þessum orðum: hagnýt og djörf hönnun, einfaldleiki og lágt verð. Hefur hann fengið mikið lof fyrir stílhreint og notendavænt innra rými sem er laust við kraðak af tökkum.

„Markmið Citroën var að færa viðskiptavinum meira af því sem skiptir raunverulegu máli með því að nota tækninýjungar og snjalla valkosti til að tryggja fallega hönnun og þægindi í notendavænum og hagkvæmum bíl. Það má segja að þeim hafi tekist ætlunarverkið sitt því móttökurnar hafa verið glimrandi.

C4 Cactus svarar spurningum sem brenna á bíleigendum í dag. Hvernig get ég eignast og rekið nýjan bíl? Hvers vegna er ekki framleiddur léttari og sparneytnari bíll? Er ekki hægt að vernda hurðirnar gegn rispum og skellum? Af hverju getur mælaborðið ekki verið notendavænna og stílhreinna? Öllum þessum spurningum er svarað með nýja Citroën C4 Cactus,“ segir Brimborg, umboðsfyrirtæki Citroen á Íslandi.

21 verðlaun nú þegar!

Eins og áður segir hefur Cactus hlotið góðar viðtökur og sópað að sér verðlaun og viðurkenningar. Meðal þess má nefna „Bíll ársins 2015“ í Danmörku, „Bíll ársins 2015“ á Spáni, „Bíll ársins“ í Króatíu, „Hlaðbakur ársins“ frá TopGear Magazine, Besti „Crossover“ frá Next Green Car og „Hönnun ársins“ frá Fleet World Honours.

Brimborg segir að nýr C4 Cactus sé á hreint út sagt frábæru verði, eða frá einungis 2.690.000 kr. Bíllinn er búinn nýjustu kynslóð véla sem eru bæði sparneytnar og léttar. Hann eyðir frá aðeins 3,4 lítrum á hundraðið og losar einungis frá 89 g/km. Yfirbygging C4 Cactus er einnig létt sem hefur þau áhrif að varahlutir verða fyrir minna álagi, sem aftur leiðir til minna viðhalds. „Þegar allt er saman tekið er rekstrarkostnaður Citroën C4 Cactus nærri 20% lægri en rekstarkostnaður annarra bíla í sama stærðarflokki,“ segir Brimborg.

Hvað er Airbump?

Eitt af því sem hefur gert Cactus svona umtalaðan er Airbump hlífðarklæðningin sem ver lakkið gegn hvimleiðum rispum og skellum er dæmi um eina slíka nýjung. Citroën hefur einkarétt á Airbump hönnuninni sem felur í sér frábæra blöndu af stíl og hagkvæmni.

Airbump hlífðarklæðningin ver lakkið gegn hvimleiðum rispum og skellum.
Airbump hlífðarklæðningin ver lakkið gegn hvimleiðum rispum og skellum.
Hinir verðlaunuðu innviðir Citroen C4 Cactus.
Hinir verðlaunuðu innviðir Citroen C4 Cactus.
mbl.is