Munaður og kraftur í eina sæng

Bentley EXP 10 Speed 6 var kynntur áhorfendum með dramatískum …
Bentley EXP 10 Speed 6 var kynntur áhorfendum með dramatískum hætti á bílasýningunni í Genf í byrjun mánaðar. mbl.is/afp

Með markverðari hugmyndabílum sem kynntir voru á alþjóðlegu bílasýningunni í Genf fyrir skemmstu er fortakslaust Bentley Exp 10 Speed 6. Bíllinn er glænýr hugmyndabíll svo fátt er enn vitað um kramið, kraftinn og klikkaðan lúxusinn sem innandyra er.

Hér er ekki verið að eyða plássi eða púðri í að gera bílinn fjölskylduvænan því hann er einungis tveggja sæta. Allt er dekkað af handunnu leðri í hólf og gólf og frágangur allur eins og við er að búast frá Bentley.

Þegar maður hefur svo glápt nógu lengi er lag að senda eins og eina bæn út í kosmósinn á þá leið að bíllinn verði tekinn af hugmyndastiginu og settur í framleiðslu. Það má allavega lengi vona.

jonagnar@mbl.is

Það fer hvergi á milli mála að hér kostar hvert …
Það fer hvergi á milli mála að hér kostar hvert smáatriði fúlgur fjár og svo mun að sjálfsögðu verða ef bíllinn fer í fulla framleiðslu.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: