Lengri og breiðari Hyundai i20 frumsýndur

Nýr Hyundai i20 er rúmgóður fólksbíll.
Nýr Hyundai i20 er rúmgóður fólksbíll.

Bifreiðaumboðið BL í Garðabæ frumsýnir nk. laugardag, 2. maí, glæsilegan Hyundai i20.

Í tilkynningu um frumsýninguna segir, að bíllinn beri sterk einkenni nýjustu kynslóðar fólksbíla frá framleiðandanum sem hlotið hafa hver verðlaunin á fætur öðrum fyrir frísklega en jafnframt fágaða hönnun, þar sem ekkert er sparað í staðalbúnaði.

Nýr Hyundai i20 sé jafnframt rúmgóður fólksbíll sem er bæði lengri og breiðari en fyrirrennarinn. Hann er boðinn í nokkrum útfærslum. Hægt er að velja á milli þriggja vélarstærða, 1,1 lítra dísilvélar sem er 75 hestöfl, 1,2 lítra, 78 hestafla bensínvélar og 1,4 lítra, 99 hestafla bensínvélar.

Hyundai hlaut í mars hönnunarverðlaunin Red Dot Design fyrir tvær gerðir i20, m.a. fimm dyra útgáfuna, þar sem dómnefndinni sagði bílinn kalla fram sterka nærveru sem m.a. væri undirtrikuð með lengri vélarhlíf, hástæðari og fljótandi svörtum hliðarlínum og svipmiklu og stóru grilli. Red Dot Design verðlaunin eru enn ein staðfesting þess mikla árangurs sem hönnuðir Hyundai hafa náð með nýrri og breyttri kynslóð Hyundai á Evrópumarkaði. 

Frumsýning i20 nk. laugardag stendur milli kl. 12 og 16 og verða reynsluakstursbílar á staðnum.

Það er flottheitum fyrir að fara í stjórnklefa Hyundai i20.
Það er flottheitum fyrir að fara í stjórnklefa Hyundai i20.
mbl.is