Sumarsýning Kia

Kia Soul verður í öndvegi á Kia-sýningunni í Öskju.
Kia Soul verður í öndvegi á Kia-sýningunni í Öskju.

Sumarstemmning verður í Bílaumboðinu Öskju á laugardag en þá verður sérstök sumarsýning Kia haldin á Krókhálsinum kl. 12-16. Hinn nýi Kia Soul SUV verður í forgrunni á sýningunni en auk hans verður fjölbreytt bílalína Kia til sýnis.

Nýja útfærslan af Kia Soul SUV er með jepplinga útlit, með brettaköntum og sílsalistum. Auk þess kemur hann á 18" felgum, með High gloss stuðara, LED ljósum, leður innréttingu, rafmagnsstillingu í bílstjórasæti, 8" skjá með leiðsögukerfi og bakkmyndavél. Kia Soul SUV er sjálfskiptur með 1,6 lítra dísilvél sem skilar 128 hestöflum og er mjög eyðslugrönn og umhverfismild.

Allir þeir sem reynsluaka Kia bílum á laugardag fara í pott og geta unnið miða á stórleik Íslands og Tékklands á Laugardalsvelli 12. júní, að því er fram kemur í tilkynningu.

Auk spennandi bíla verður margt fleira í boði í Öskju á laugardaginn. Má þar nefna ýmis tilboð á þjónustu, afslætti af auka- og varahlutum fyrir Kia bíla og einnig verður boðið upp á létta 7 punkta sumarskoðun fyrir Kia bíla.

Þá verður sérstakt hjólaþema í gangi. BMX brós úr Ísland got talent koma í heimsókn og auk þess verður tilboð á skráningu í hjólreiðakeppnina Kia gullhringinn sem haldin verður 11. júlí en Kia eigendur þurfa ekki að greiða þátttökugjald í mótið.

mbl.is