MX og Enduro á Kirkjubæjarklaustri

Frá MX og Enduro mótinu á Klaustri í fyrra.
Frá MX og Enduro mótinu á Klaustri í fyrra.

Hin árlega MX og Enduro keppni á Kirkjubæjarklaustri fer fram á morgun, laugardag. Að sögn Sigurðar Svanssonar er mótið það stærsta ár hvert hér á landi og hafa á þriðja hundrað keppendur tekið þátt á síðustu árum.

„Mótið heldur áfram að stækka og hefur fest sig í sessi sem eitt vinsælasta mót ársins. Auk innlendra keppenda sem taka þátt þá hefur mótið einnig dregið að sér erlenda keppendur sem hafa náð langt á erlendum vettvangi,“ segir Sigurður.

Vélhjólaíþróttaklúbburinn og MSÍ, Mótorhjóla- og snjósleðasamband Íslands, standa að keppninni ásamt landeigendum á Ásgarði við Kirkjubæjarklaustur. Keppnin á síðasta ári laðaði að sér um 240 keppendur. Undanfarin ár  hefur gríðarleg vinna verið lögð í að gera keppnissvæðið betur úr garði, og svæðið skipulagt til að henta fyrir keppni eins og þessa. Landeigendur hafa einnig unnið hörðum höndum að frágangi á brautinni að keppni lokinni með því að slétta og græða keppnisstæðið og má því segja að á hverju ári sé keppt í nýrri braut.

Láta gott af sér leiða

Keppnishaldarar og keppendur hafa jafnframt undanfarin ár látið gott af sér leiða á staðnum og hafa ma. Heilsugæslustöðin og Leikskólinn á Klaustri tekið við styrkjum í tengslum við keppnina.

Keppnin hefst klukkan 12 á hádegi á morgun og lýkur ekki fyrr en 6 tímum síðar eða um klukkan  18. Þolakstur á mótorhjólum er ein erfiðasta íþróttagrein heims og því er þessi keppni langt frá því að vera auðveld þó svo skemmtunin sé lykilatriði flestra þátttakenda.

Keppt verður í nokkrum flokkum s.s. einstaklingsflokki en sigurvegarinn þar fær sæmdarheitið „Járnkarlinn“ að keppni lokinni enda gríðarleg þolraun að keppa einn í 6 tíma í keppni sem þessari. Einnig verður keppt í tveggja og þriggja manna liðum auk þess sem veitt verða ýmis skemmtileg verðlaun s.s. í flokki feðga – mæðgina - eldri en 100 ára - samanlagt í tveggja manna flokki - eldri en 135 ára samanlagt í þriggja manna flokki.

Transatlantic Offroad Challenge 2014 | Klaustur 2014 from Red Bull Iceland on Vimeo.

mbl.is