Samgöngustofa og VÍS stóðu fyrir óvenjulegri keppni um það hver væri fljótastur að spenna á sig öryggisbelti.
Forystufólk íslenskra stjórnmálaflokka lagði málefninu lið með þátttöku í keppninni og boðskapurinn er skýr: Öryggisbeltið bjargar mannslífum.
Þó mikil vitundarvakning hafi átt sér stað um það á umliðnum árum og flestir nýti sér þetta einfalda og sjálfsagða öryggistæki, þá voru 46% allra þeirra sem létust í bílslysum á undanförnum 5 árum ekki í öryggisbeltum.
Á myndskeiði sem fylgir þessari frétt má sjá viðureign stjórnmálamanna um hröðustu handtökin við að spenna öryggisbelti og hverjir eru sigurvegararnir í þeirri keppni. Tíminn sem það tók að klæðast beltinu var á bilinu 1,36 til 2,8 sek. „Sigurvegarar eru allir þeir sem spenntu beltin. Það borgar sig að vera í sigurliðinu. Þessum sekúndum er vel varið þegar þær geta bjargað lífi þínu?,“ segir á heimasíðu Samgöngustofu.