Volkswagen dagurinn vakti lukku

Margir tóku snúning í veltibílnum og áttuðu sig á því, …
Margir tóku snúning í veltibílnum og áttuðu sig á því, að beltin bjarga.

Mikill fjöldi gesta lagði leið sína í Heklu á dögunum þegar Volkswagen dagurinn var haldinn hátíðlegur. Fjölmargar glæsibifreiðar frá Volkswagen voru til sýnis, þar á meðal Volkswagen e-Golf, Touareg, Passat og glænýr Volkswagen Golf GTE sem var frumsýndur við þetta tilefni.

„Volkswagen Golf GTE hefur verið beðið með eftirvæntingu en um er að ræða fyrsta tengiltvinnbíl Volkswagen. Hann gengur sem sagt fyrir bæði rafmagni og bensíni og er því afar sparneytinn og umhverfisvænn. Hann er einnig kraftmikill og fer úr núlli í hundrað á 7,6 sekúndum og nær 222 kílómetra hámarkshraða.

Það var gaman að geta sýnt nýjan GTE á þessum degi og hann vakti mikinn áhuga gesta sem skoðuðu hann í krók og kima og leist greinilega vel á nýja gripinn. Dagurinn heppnaðist ákaflega vel og við erum hæstánægð,“ segir Árni Þorsteinsson, sölustjóri Volkswagen.

Nýlega afhenti Hekla forsvarsmönnum Brautarinnar og Ökuskóla 3 nýjan veltibíl af tegundinni Volkswagen Golf og er það sá fimmti í röðinni. Veltibíllinn sneri aftur tímabundið til heimahaganna meðan á Volkswagen deginum stóð og tók snúning með gestum sem bættust í hóp þeirra 300.000 Íslendinga sem hafa farið hring í veltibílnum á þeim tuttugu árum sem veltibíllinn hefur verið notaður, að því er fram kemur í tilkynningu frá Heklu.

Golf GTE vakti athygli gesta á Volkswagendeginum í Heklu.
Golf GTE vakti athygli gesta á Volkswagendeginum í Heklu.
Skoðað og spjallað um það sem undir húddinu er að …
Skoðað og spjallað um það sem undir húddinu er að finna.
Volkswagen GTE tengiltvinnbíllinn gengur bæði fyrir bensíni og rafmagni.
Volkswagen GTE tengiltvinnbíllinn gengur bæði fyrir bensíni og rafmagni.
Margir tóku snúning í veltibílnum og áttuðu sig á gildi …
Margir tóku snúning í veltibílnum og áttuðu sig á gildi spenntra bílbelta.
Sölumenn Heklu fræddu gesti um Volkswagenbílana.
Sölumenn Heklu fræddu gesti um Volkswagenbílana.
Yngstu ökumenn sýndu VW-bílunum áhuga.
Yngstu ökumenn sýndu VW-bílunum áhuga.
mbl.is