Heilsugæslan fær 50 bíla á flotaleigu

Á myndinni eru Jónas Guðmundsson, fjármálastjóri Heilsugæslunnar, Birna Bjarnadóttir, deildarstjóri …
Á myndinni eru Jónas Guðmundsson, fjármálastjóri Heilsugæslunnar, Birna Bjarnadóttir, deildarstjóri eigna og innkaupa Heilsugæslunnar, Egill Jóhannsson, forstjóri Thrifty bílaleigu og Brimborgar, Hjörtur Jónsson, flotastjóri Thrifty bílaleigu og Orri Snævar Stefánsson, rekstrarstjóri Thrifty bílaleigu.

Í kjölfar útboðs Ríkiskaupa þá hefur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins samið til þriggja ára við Thrifty bílaleigu um flotaleigu á 50 bílum fyrir starfsmenn Heilsugæslunnar sem veita skjólstæðingum stofnunarinnar heimaþjónustu.
 
Thrifty bílaleiga bauð lægst í útboði Ríkiskaupa fyrir Heilsugæsluna. Samningurinn er um flotaleigu með allri þjónustu á sparneytnum smábílum sem Thrifty hefur áður leigt út til erlendra ferðamanna en það gerir leigunni kleift að bjóða mjög hagstætt leiguverð til Heilsugæslunnar.

Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu en heilsugæslan samanstendur af fimmtán heilsugæslustöðvum í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, Þróunarstofu heilsugæslunnar, Þroska- og hegðunarstöð, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsu-eftirfylgd/iðjuþjálfun og skrifstofu Heilsugæslunnar.

Thrifty bílaleiga er í hópi stærstu bílaleiga á Íslandi með um 800 bíla í sinni þjónustu og leigir út bíla frá Brimborg af Ford, Volvo, Mazda og Citroën gerð. Thrifty leigir út fólksbíla í skammtímaleigu til erlendra ferðamanna og fólksbíla og sendibíla til Íslendinga ásamt því að bjóða langtímaleigu til fyrirtækja og einstaklinga.

mbl.is