Kia rýfur þúsund bíla múrinn í fyrsta sinn

Inga Rún Long Bjarnadóttir tekur við Kia bíl númer 1.000 …
Inga Rún Long Bjarnadóttir tekur við Kia bíl númer 1.000 frá Sveini Kristjánssyni, sölufulltrúa hjá Öskju.

Eittþúsundasti nýskráði Kia-bíllinn á árinu var afhentur hjá Öskju síðastliðinn föstudag. Það var Inga Rún Long Bjarnadóttir sem keypti bíl númer 1.000 sem er af gerðinni Kia Rio, en það er söluhæsta módelið hjá Kia á Íslandi og um leið hjá Bílaumboðinu Öskju.

„Þetta eru stór og ánægjuleg tímamót fyrir Kia og Öskju því þetta er í fyrsta skipti sem við náum að skrá þúsund Kia bíla á einu ári. Og það er gaman að ná að afhenda þúsundasta Kia-bíl ársins 2015 í lok ágúst, þegar enn eru fjórir mánuðir eftir af árinu. Við erum ákaflega ánægð með þennan góða árangur,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.

Sala á Kia hefur gengið mjög vel á Íslandi undanfarin ár og í ár er Kia annað mest selda merkið á landinu á eftir Toyota. Kia er með tæplega 9,5% markaðshlutdeild, þá hæstu hjá Kia í nokkru Evrópulandi.

„Það spilar margt inn í þennan góða árangur. Kia bílarnir þykja fallega hannaðir, með lipra og góða aksturseiginleika auk þess að vera mjög sparneytnir og umhverfismildir. Þá er sjö ára ábyrgðin mjög sterk en enginn bílaframleiðandi í heiminum í dag býður svo langa ábyrgð á bílum sínum. Loks er endursala þeirra mjög góð sem skiptir miklu máli,“ segir Þorgeir.

agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: