Halda mætti að menn yrðu að eiga níu líf til að lifa af níu veltur eftir árekstur á ofsahraða.
Þá óskemmtilegu reynslu fékk hinn 17 ára gamli ökumaður Pedro Piquet í GT3 sportbílakappakstri í Brasilíu.
Ekið var utan í bíl Pedro með fyrrgreindum afleiðingum. Að sjá á myndskeiði frá atvikinu virðist um all hryllilegt slys að ræða.
Eftir að hafa fengið aðhlynningu á vettvangi var Piquet fluttur á sjúkrahús til frekara eftirlits. Þar var honum haldið í rúman sólarhring meðan gengið var úr skugga um að hann hafi ekki skaddast alvarlega. Hlaut hann aðeins minniháttar meiðsl; mar hér og þar á líkamanum.
Ökumaðurinn ungi er sonur Nelsons Piquet fyrrum heimsmeistara í formúlu-1.