Tæknivæddur Mercedes-Benz E-Class frumsýndur

Hinn nýi tæknivæddi Mercedes-Benz E-Class
Hinn nýi tæknivæddi Mercedes-Benz E-Class

Nýr og tæknivæddur Mercedes-Benz E-Class verður frumsýndur hjá Bílaumboðinu Öskju á laugardaginn, 7. maí, klukkan 12 til 16.

Þetta er tíunda kynslóð þessa vinsæla lúxusbíls og kemur nú fram stærri og betur búinn en nokkru sinni áður. E-Class er söluhæsti bíll þýska lúxusbílaframleiðandans frá upphafi en meira en 13 milljónir E-Class hafa selst á heimsvísu frá því bíllinn kom fyrst á markað.

„Segja má að framtíðin sé komin með nýjum E-Class því bíllinn er hlaðinn nýjasta tæknibúnaði og setur ný viðmið í sínum stærðarflokki varðandi nýjustu öryggis- og aksturskerfi. Bíllinn er glæsilegur í alla staði. Mikið er lagt upp úr lúxus þægindum en bíllinn líkist talsvert flaggskipinu S-Class í hönnun bæði að innan og utan og er ekki leiðum að líkjast. Mercedes-Benz kynnir til leiks nýja 2,0 lítra dísilvél í E-Class sem er 195 hestöfl. Nefnist sú útgáfa bílsins 220d og mun hann aðeins eyða frá 3,9 lítrum í blönduðum akstri.


Nýr E-Class er með nýju og háþróuðu Drive Pilot kerfi frá Mercedes-Benz, sem er næsta skrefið í áttina að sjálfvirkjum akstursbúnaði bíla. Kerfið sér um að halda réttri fjarlægð á milli bílsins fyrir framan og getur auk þess haldið í við bíl upp að allt að 210 km hraða. Ökumaður fær einnig mikla aðstoð varðandi stýringu bílsins, skiptingu á milli akreina og auk þess varðandi hemlun bílsins ef hætta steðjar að. Þá sér kerfið einnig um að aðstoða ökumann mjög mikið með að leggja í stæði. Bíllinn er því að mörgu leyti sjálfakandi og enginn bíll á markaði er kominn lengra hvað varðar þessa tækni í dag,“ segir í tilkynningu vegna frumsýningarinnar.

E-Class er fyrsti bíllinn sem kemur með Touch Control búnaði þannig að ökumaður þarf aðeins að snerta stýrið til að stýra ákveðnum aðgerðum. Þá getur ökumaður sett bílinn í gang úr snjallsímanum sínum. Bíllinn er auk þess búinn 12,3" skjá, íslensku leiðsögukerfi, árekstrarvörn, akreinavara og mörgu fleiru. Þá eru möguleikarnir um aukabúnað nánast ótæmandi.

mbl.is