Sænski bílsmiðurinn Volvo hefur fengið fótboltahetjuna Zlatan Ibrahimovic í lið við sig vegna auglýsingaherferðar fyrir hinum nýja Volvo V90 fólksbíl.
Markaðsherferðinni verður hleypt af stað næstkomandi mánudag, 30. maí. Leikur Ibrahimovic lykilhlutverk í auglýsingunum sem þá verður hafin birting á.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Volvo fær Zlatan til liðs við sig því hann tók þátt í markaðsherferð bílafyrirtækisins síðast árið 2014 og þótti árangurinn af því góður.