Navara áreiðanlegastur pallbíla

Nissan Navara var fyrr á árinu kjörinn „Pallbíll ársins 2016“.
Nissan Navara var fyrr á árinu kjörinn „Pallbíll ársins 2016“.

Í nýjustu gæðakönnun bandaríska greiningafyrirtækisins J.D. Power hlaut hinn nýi Nissan Frontier, sem heitir Navara á Evrópumarkaði, hæstu einkunn í flokki meðalstórra pallbíla og er hann því áreiðanlegasti bíllinn í sínum flokki.

Í könnuninni voru Bandaríkjamenn sem keypt höfðu nýjan bíl spurðir um reynslu sína fyrstu 90 dagana frá afhendingu og hvort einhver tilfelli hefðu komið upp sem gera hafi þurft við á tímabilinu.

Auk Frontier varð Nissan Altima í öðru sæti í flokki meðalstórra fólksbíla og Murano í þriðja sæti í flokki meðalstórra sportjeppa. Þá varð Infiniti QX80 sem tilheyrir lúxusmerki Nissan annar í flokki stórra lúxusjeppa.

Að mati J.D. Power er greinilegt að bílaframleiðendur leggja mikið á sig til að uppfylla væntingar viðskiptavina sinna til nýja bílsins. Sýna rannsóknir J.D. Power enda, að 49% kaupenda líta fyrst og fremst til áreiðanleika þegar kemur að vali á tegund. Þær sýna einnig að 54% bíleigenda sem ekki þurfa að láta laga hnökra fyrstu 90 dagana snúa sér aftur til sama framleiðanda þegar kemur að næstu bílkaupum.

mbl.is