Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á 12 Renault- og Dacia-bifreiðum. Um er að ræða Dacia Dokker-, Renault Megane IV- og Renault Talisman-bifreiðar framleiddar á árinu 2016.
Ástæða innköllunarinnar er sú að örlítill möguleiki er á að ABS/ESP-dæla í bílnum bremsi ekki nægilega vel þegar bremsa þarf bílinn. Skipta þarf um ABS-dæluna í bílnum, að því er segir á vef Neytendastofu.
Haft verður samband við viðkomandi bifreiðaeigendur í gegnum síma.