Sala á nýjum bílum í nóvembermánuði jókst um 20,4% miðað við sama mánuð árið 2015.
Nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili eru 955 á móti 793 í nóvember í fyrra, sem er aukning um 162 bíla.
Samtals hafa verið skráðir 17.808 fólksbílar þar sem af er árinu og er það 35% aukning frá fyrra ári.
Bíleigubílar eru nú sem fyrr stór hluti af nýskráningum eða 8.696 stk sem gera um 49% af heildinni á þessum 11 mánuðum ársins. Það er einkum ört vaxandi fjöldi ferðamanna til landsins sem kallað hefur á aukinn fjölgun bílaleigubíla, að því er fram kemur í tilkynningu frá Bílgreinasambandinu.