Sannkölluð vetrar- og útivistarstemmning ríkti hjá Toyota Kauptúni á laugardag þegar á fjórða þúsund manns komu á árlega Jeppasýningu Toyota.
Fagurrauður Hilux Invincible sem kynntur var í fyrsta sinn á laugardag dró að sér jeppaáhugafólk og gestir kynntu sér starfsemi Ferðafélags Íslends sem var sérstakur gestur sýningarinnar í tilefni af 90 ára afmæli félagsins.
Þá skoðuðu gestir margvíslegan búnað til fjalla- og vetrarferða auk þess sem Toyotajeppar breyttir sem óbreyttir glöddu augað, svo sem sjá má á meðfylgjandi myndum.