Ný Octavia og Kodiaq frumsýnd

Skoda dagurinn verður haldinn hátíðlegur næstkomandi laugardag, 20. maí, milli klukkan 12 og 16 í höfuðstöðvum Skoda við Laugaveg 170 – 174. Auk nýrra bíla verður þar boðið  upp á grillaðar pylsur, svaladrykki og andlitsmálningu.

Að auki verður Skoda deginum fagnað á Bílasölu Selfoss, Höldi Akureyri og Heklu  Reykjanesbæ. Á öllum stöðum verður margt um að vera og helst ber að nefna frumsýningar á nýrri og uppfærðri Skoda Octaviu ásamt sportjeppanum Skoda Kodiaq.

Skoda Octavia er einn mest seldi bíll á Ísland. „Nýi bíllinn hefur fengið andlitslyftingu og er mikið uppfærður. Hönnunin er enn fágaðri og framsæknari en áður og ný LED dag- og afturljós skína skært. Ný Octavia er einstaklega rúmgóð með allt að 610 lítra farangursrými sem hægt er að stækka í 1.740 l. Hún kemur með ótal nýjum tæknimöguleikum eins og nýju upplýsinga- og afþreyingarkerfi með allt að 9,2 tommu skjá og þráðlausri snjallsímahleðslu. Meðal staðalbúnaðar í nýju útgáfunni er leðurklætt aðgerðastýri, LED afturljós og bakkmyndavél. Úrval aukabúnaðar er í boði á borð við tengivagnsaðstoð, fjarlægðatengdan hraðastilli og blindsvæðagreini. Þrjár gerðir véla eru fáanlegar; 1,4 lítra metan- og bensínvél og 1,6 og 2,0 lítra dísilvélar,“ segir í tilkynningu um sýninguna.

Skoda Kodiaq er fyrsti jeppi framleiðandans í fullri stærð. Um er að ræða fjölnota jeppa sem þykir státa af kraftmikilli hönnun og hann hefur einnig hlotið lof fyrir tengibúnað og nýsköpun í tæknilausnum. Kodiaq er í boði fimm og sjö manna, hann er 4,75 metrar á lengd og segir Hekla hann vera með stærsta farangursrýmið í sínum flokki. Í boði eru bæði 1.4 lítra bensínvélar og 2.0 lítra dísilvélar.

100 forpantanir í Kodiaq

„Við erum mjög stolt að frumsýna þessa flottu bíla. Octavia er einn söluhæsti bíllinn á Íslandi og eftir uppfærsluna verður hann eflaust enn vinsælli. Kodiaq jeppinn er nýjasta útspilið frá Skoda og gefur forsmekkinn af því sem koma skal en Skoda hyggst auka úrvalið á sportjeppamarkaði til muna á næstu misserum. Það er mikil eftirspurn eftir Kodiaq og um 100 manns hafa forpantað hann svo það er gaman að geta frumsýnt hann. Að auki verðum við að sjálfsögðu með Superb, Fabiu og Yeti til sýnis,“ segir Gestur Benediktsson sölustjóri Skoda.

 

mbl.is