Bílaumboðið Askja afhenti á föstudaginn fimmhundraðasta Mercedes-Benz fólksbílinn á árinu. Þetta er metsala hjá Mercedes-Benz á Íslandi á einu ári.
Jónas Karlesson er eigandi 500. Mercedes-Benz bílsins sem er tengiltvinnbíll af gerðinni GLE sem er annar söluhæsti Mercedes-Benz bíllinn á árinu á eftir GLC.
Jónas og eiginkona hans Sigrún Brynja Hannesdóttir eru að eignast sinn fyrsta Mercedes-Benz og eru að vonum hæstánægð með bílinn enda glæsilegur í alla staði. Þau eru búsett á Akureyri en þar er Höldur viðurkenndur þjónustuaðili fyrir Mercedes-Benz.
„Við erum mjög ánægð að hafa afhent 500 bíla á árinu. Mercedes-Benz er áfram söluhæsta lúxusbílamerkið á Íslandi eins og undanfarin ár en á þessu ári hefur verið sérlega mikil aukning í sölu á Plug-in Hybrid bílum” segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri hjá Öskju, í tilkynningu.
Af þeim 500 Mercedes fólksbílum sem Askja hefur selt á árinu eru 122 þeirra í tengiltvinnútfærslu, Plug-in Hybrid. Í þeim flokki er Mercedes-Benz þriðja söluhæsta merkið á Íslandi.