Hvetja Íslendinga til að skoða spár

Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Gran Canaria, einni af …
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Gran Canaria, einni af Kanaríeyjum. mbl.is/Brynjar Gauti

Mikilli hitabylgju er spáð í Vestur- og Mið-Evrópu og fer veðrið hlýnandi næstu daga. Veðurstofan hvetur Íslendinga sem ætla erlendis, til þess að kynna sér vel veðurspána á þeim stað sem förinni er heitið.

Appelsínugul veðurviðvörun tók gildi í dag til sunnudags á Gran Canaria, einni af Kanaríeyjum, þar sem í hitinn getur farið í 36 stig í austri, suðri og vestri. 

Spá frá Reiknimiðstöð Evrópu, sem gildir vikuna 18.-25. júlí, sýnir hitafrávik næstu vikuna. Hlýjast verður á Ítalíu, á Mið-Spáni, norðan-, austan- og sunnanverðu Frakklandi og í Mið-Evrópu. 

Óvenju­mik­il hita­bylgja hef­ur þá gengið yfir Ítal­íu og lítið hef­ur verið um rign­ingu sem valdið hefur miklum þurrkum í norðurhluta landsins.

Hitafrávik dagana 18.-25. júlí sýna hvar hitabylgjan verður mest.
Hitafrávik dagana 18.-25. júlí sýna hvar hitabylgjan verður mest. Skjáskot/Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert