Urðu bestu vinir á barnaspítalanum

Porter er mikill dansari og veit Altice fátt skemmtilegra en …
Porter er mikill dansari og veit Altice fátt skemmtilegra en að klæða sig upp í kjól og dansa við hann. mbl.is/Instagram

Eitt fallegasta myndbandið á vefnum þessa dagana er án efa myndbandið af vinunum Mack Porter og Payson Altice. Þau kynntust á Barnaspítalanum í Phoenix í upphafi ársins þar sem þau lágu inni á spítalanum í meðferð við krabbameini. Hann vegna eitilfrumukrabbameins og hún vegna bráðahvítblæðis. 

Bæði eru þau þriggja ára að aldri og áttu ekki góðar stundir inn á spítalanum þar til þau hittu hvort annað.

Takmarkanir eru nú í gildi á sjúkrahúsum í Bandaríkjunum vegna kórónuveirunnar en erfitt reyndist að halda vinunum tveimur í sundur eftir að Mack sá Payson með fangið fullt af blöðrum í fyrsta skiptið á gangi barnaspítalans. 

Um leið og þau vöknuðu vildu þau hittast og leika. Payson kenndi Mack allt um ninja-skjaldbökurnar og Mack kenndi Payson meðal annars að dansa.  

Þegar Mack var búinn með sína meðferð var það eina sem komst að hjá honum að fara aftur í „læknahúsið“ eins og hann kallaði spítalann að hitta besta vin sinn og leika.

Þau höfðu ekki hist í nokkra mánuði þegar foreldrarnir ákváðu að skipuleggja leikstefnumótið. 

Mack bauð Payson heim til sín og valdi blóm til að gefa henni og skemmtilegt dót fyrir hana að leika sér með. Svo klæddu þau sig upp á og dönsuðu saman. 

View this post on Instagram

A post shared by TODAY (@todayshow)

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert