Vildi fylgjast með getnaði litla systkinis síns

Michael Bublé og eiginkona hans Luisana Lopilato eiga von á …
Michael Bublé og eiginkona hans Luisana Lopilato eiga von á sínu fjórða barni. RICHARD DOBSON/NEWSPIX

Hinn sex ára gamli Eli varð leiður þegar foreldrar hans, tónlistarmaðurinn Michael Bublé og Luisana Lopilato, sögðu honum að hann væri að fara eignast þriðja systkinið. Þegar foreldrar hans spurðu af hverju hann væri leiður spurði hann af hverju hann hefði ekki fengið að fylgjast með getnaðinum. 

Bublé sagði frá atvikinu í viðtali í The View fyrir helgi. „Við sögðum krökkunum á aðfangadagskvöld. Og við sögðum þeim að mamma væri með barn í maganum og þau myndu eignast lítið systkini. Og sex ára sonur minn Eli, varð miður sín. Við spurðum hvað væri að og hann sagði: „Af hverju buðuð þið okkur ekki að fylgjast með þegar þið urðuð ástfangin og bjugguð til barnið?“,“ sagði Bublé. 

Bublé útskýrði fyrir spjallþáttastjórnandanum að Eli litli hafi nýverið lært um hvernig börnin verða til og að „foreldrar yrðu ástfangnir og byggju til börn“. „En þau skilja auðvitað ekkert hvernig þetta gerist líkamlega. Og það er svo sætt. Það er bara svo sætt, hann langaði bara að vera boðið,“ sagði Bublé. 

Bublé og eiginkona hans eiga einnig soninn Noah sem er átta ára og dótturina Vidu sem er þriggja ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert