„Að lifa lífi sínu í „beinni“ útsendingu tekur á“

Jón Pétur Zimsen aðstoðarskólastjóri í Réttarholtsskóla sendir foreldrum reglulega tölvupósta …
Jón Pétur Zimsen aðstoðarskólastjóri í Réttarholtsskóla sendir foreldrum reglulega tölvupósta með uppbyggilegum hugleiðingum. mbl.is/Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir

Jón Pét­ur Zimsen aðstoðarskóla­stjóri í Rétt­ar­holts­skóla seg­ir að það taki mikla orku frá unglingum að lifa lífi sínu í beinni útsendingu. Í pistli sem hann sendi á for­eldra kem­ur hann með til­lög­ur að því hvernig for­eldr­ar geti stutt við þá sem þau elska mest - börnin sín. 

Nú eru ferðalögin í 9. og 10. bekk búin, án snjallsíma, í þéttri og skemmtilegri dagskrá. Fyrir alla er það kærkomið frelsi frá stanslausu áreiti snjalltækja sem hafa það að oft markmiði að safna upplýsingum um okkur og selja hæstbjóðanda.

Það er nánast undantekningarlaust að unglingarnir koma heim úr símalausum ferðum og lýsa yfir ánægju með að geta ekki farið í símann, það er umhugsunarvert.

Að auki trufla þessi tæki oft svefn, bæði barna, unglinga og fullorðinna og því afar mikilvægt að stjórna tækjunum en láta þau ekki stjórna okkur. Þreytt manneskja er ólíklegri að árangri og líður almennt verr. Að lifa lífi sínu í „beinni“ útsendingu tekur á og eykur líkur á margskonar neikvæðum fylgifiskum.

Allskonar atburðir koma upp í skólanum og við finnum að í því betri tengslum við eru í við nemendur/foreldra því betur gengur okkur betur að leysa málin. Við vinnum í því markvisst að kynnast unglingunum og mynda tengsl við þá. Þannig aukum við líkur á bættri velferð og aukum líkur á lífsgæðum þeirra.

Á unglingsárum þroskast krakkarnir okkar frá því að vera börn yfir í ungmenni og svo unga fullorðna einstaklinga. Oft eru margar áskoranir á leiðinni og margskonar freistinga og þá skiptir miklu máli að tengslin ykkar við unglinga ykkar séu góð þannig að þeim finnist gott og öruggt að leita til ykkar.

Góð tengsl verða ekki sjálfkrafa til, það kostar vinnu að mynda og viðhalda þeim:

  • Talið við unglingana ykkar.
  • Verið inn í áhugamálum þeirra.
  • Þekkið vini/vinkonur þeirra.
  • Hrósið þeim þegar þeir treysta ykkur fyrir persónulegum málum.
  • Ekki bregðast við að hörku við mistökum þeirra.
  • Ekki láta allt eftir þeim, setjið þeim mörk.
  • Ekki vera snjóplógur, leyfið þeim með ykkar aðstoð, að takast á við minniháttar núning. Það ferli þroskar alla og þjálfar fólk í að setja sig í spor annarra.
  • Ræðið við þau hvaða sögu þau vilja skrifa um sig sjálf á þessum mótunarárum.
  • Spyrjið hvort þau hafi áhyggjur af einhverju og ræðið. Ekki stimpla áhyggjur/kvíða sem smámál, í þeirra huga er þetta stórmál. Ræðið lausnir.


Ef við erum í góðum tengslum við unglingana okkar græða allir. Hvað er meira virði en góð samskipti og tengsl við þau sem maður elskar mest?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert