Óvenjuleg íþróttakeppni fór fram á Englandi í gær en þá var stórum osti velt niður bratta hlíð og hópur fólks stökk á eftir. Um er að ræða árlega keppni og keppendur í ár voru m.a. frá Bandaríkjunum, Ástralíu og Nýja-Sjálandi auk heimamanna. Læknar og bráðaliðar voru í viðbragðsstöðu enda fylgja þessum hlaupum ávallt meiðsli. Talið er að keppnin eigi rætur í heiðinni hátíð, sem haldin var til að fagna vori.