Segir Ono hafa beðið sig að gera ýmislegt ósiðlegt og ólöglegt

Yoko Ono, ekkja Johns Lennons, með mynd af þeim hjónum …
Yoko Ono, ekkja Johns Lennons, með mynd af þeim hjónum í bakgrunni. Reuters

Koral Karsan, bílstjóri listakonunnar Yoko Ono, sakar hana um að hafa beðið hann að gera ýmislegt ósiðlegt og ólöglegt. Ono kærði bílstjórann á dögunum fyrir að reyna að kúga út úr sér fé, tvær milljónir dollara. Karsan þvertekur fyrir það.

Karsan mætti fyrir rétt í New York í gær og sagðist vera fórnarlambið í málinu. Lögmaður Karsan, Robert Gottlieb, sagði fréttastofunni AFP frá því í dag að Ono hefði beðið Karsan um að gera ýmislegt ósmekklegt en vildi ekki fara nánar út í hvað það væri. Karsan hefur unnið fyrir Ono í tíu ár. Hann var handtekinn í síðustu viku og ákærður fyrir fjárkúgun.

Þær sögur hafa birst í fjölmiðlum vestanhafs að Karsan hafi tekið myndbönd og ljósmyndir af Ono í laumi og hótað að senda efnið frá sér ef hún greiddi honum ekki tvær milljónir dollara. Þá er því haldið fram að hann hafi hótað að drepa Ono þegar hún neitaði að borga honum.

Talsmaður Ono, Elliot Mintz, sagði í síðustu viku að hún væri í miklu uppnámi yfir þessu og fyndist sem hún hefði verið svikin. Það væri ekki rétt að Ono hefði áreitt Karsan kynferðislega, eins og haldið hefur verið fram víða.

Dagblaðið New York Times hefur það eftir ónefndum heimildarmanni innan lögreglunnar þar í borg að Ono sjáist á náttfötum á ljósmyndunum og tjái sig um menn og málefni á myndbandinu, án þess að nánar sé farið út í þá sálma. Karsan á yfir höfði sér 25 ára fangelsisdóm verði hann fundinn sekur.

Patrick Brosnahan, verjandi Koral Karson, ræðir við blaðamenn 14. desember …
Patrick Brosnahan, verjandi Koral Karson, ræðir við blaðamenn 14. desember s.l. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg