Sean Penn verður formaður dómnefndar í Cannes

Sean Penn í Cannes á síðasta ári.
Sean Penn í Cannes á síðasta ári. AP

Bandaríski kvikmyndaleikarinn og leikstjórinn Sean Penn verður formaður dómnefndar kvikmyndahátíðarinnar í Cannes í maí. Penn segist í yfirlýsingu hlakka til að taka þátt í dómnefndarstörfum í Cannes en sú hátíð hafi lengi mótað strauma og stefnur í kvikmyndalistinni.

Penn, sem er 47 ára, fékk Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni Mystic River árið 2003. Hann leikstýrði nýlega myndinni  Into The Wild, sem m.a. hefur verið tilnefnd til Screen Actors Guild verðlauna.

Penn, sem eitt sinn var giftur poppstjörnunni Madonnu, komst í fréttirnar í desember þegar tilkynnt var að hann væri að skilja við eiginkonu sína, leikkonuna  Robin Wright Penn, eftir 11 ára hjónaband. Þau eiga saman tvö börn, 14 og 16 ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg