Britney mætti ekki

Það var þröng á þingi við dómshúsið í Los Angeles í dag þar sem búist ... stækka

Það var þröng á þingi við dómshúsið í Los Angeles í dag þar sem búist var við Britneyju. AP

Britney Spears lét ekki sjá sig við fyrirtöku í forræðisdeilu hennar og Kevins Federlines hjá dómarafulltrúa í Los Angeles í dag, en fregnir hermdu að lögmaður Kevins ætlaði að fara fram á við fulltrúann að Britneyju yrði alfarið meinað að hitta syni þeirra Kevins þangað til í apríl.

Spears var svipt umgengisrétti við drengina til bráðabirgða í byrjun janúar eftir að hún neitaði að afhenda Federline þá á umsömdum tíma. Er hún sögð hafa læst sig inni í herbergi með öðrum þeirra og var hún í kjölfarið flutt nauðug á sjúkrahús þar sem talið var hugsanlegt að hún reyndi að skaða sjálfa sig eða aðra. Mark Kaplan, lögmaður Federline, sagði að fyrirtaka málsins í dag væri sú mikilvægasta til þessa.

Lögmaður Kevins sagði í gær að það væri mikilvægt fyrir Britneyju að mæta til fyrirtökunnar í dag því að þá gæfist henni kostur á að andmæla kröfunni um umgengnissviptingu fram í apríl. „Það dugar ekki að leggja slíka kröfu fram símleiðis.“

Nokkur vitni áttu að koma fyrir réttinn í dag, þar á meðal lögreglumenn og hjúkrunarliðar sem kallaðir voru á heimili Britneyjar þegar hún neitaði að afhenda drengina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is