Bubbi Morthens heldur tónleika í Danmörku næsta haust í samvinnu við Iceland Express. Tónleikarnir verða haldnir 18. október í Falconersalen, sem er 2.200 manna tónleikasalur á Frederiksberg í Kaupmannahöfn. Þar mun Bubbi troða upp ásamt fleiri listamönnum sem nánar verða kynntir síðar, samkvæmt tilkynningu.
Nánar um tónleikana