Suri Cruise elskar naglasnyrtingu

Suri Cruise með foreldrum sínum Katie Holmes og Tom Cruise
Suri Cruise með foreldrum sínum Katie Holmes og Tom Cruise AP

Leikarinn Tom Cruise segir frá því í viðtali við þáttastjórnandann Oprah Winfrey, að Suri dóttir hans og eiginkonunnar Katie Holmes viti fátt skemmtilegra en fara á snyrtistofu með móður sinni. Í sérstökum tvöföldum þætti sem Winfrey gerir í tilefni af 25 ára leikaraafmæli Cruise, segist hann vera heillaður af Suri. „Henni finnst gaman að syngja og dansa, og láta snyrta á sér neglurnar með mömmu – alveg frábær.“

Rætt er við ýmsa vini leikarans. Victoria Beckham rifjar upp heimsókn þeirra vinanna á veitingastað í Madríd, þar sem þau dönsuðu öll konga. „Þessi tvö kunna svo sannarlega að skemmta sér!“ segir hún um Cruise og Holmes.

Frú Beckham opinberar að á fyrsta stefnumóti þeirra Davids hafi þau farið að sjá Jerry Maguire í bíó, með Cruise í aðalhlutverkinu. Þegar Cruise frétti það sendi hann David Beckham jakka sem hann klæddist í myndinni, áritaðan. „David hefur ekki farið úr honum síðan,“ segir Victoria.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg