Cindy Crawford á það til að dansa uppi á borði fyrir manninn sinn og vini hans. En hún segist ekki fækka fötum. Hún segist sakna þess að hafa ekki verið svolítið villtari þegar hún var yngri.
„Ég á það til að sleppa fram af mér beislinu. Stundum dansa ég uppi á borði fyrir manninn minn og vini hans. En ekki nakin,“ segir Cindy, sem er 41 árs og tveggja barna móðir.
Ennfremur er haft eftir henni: „Ég sé eftir því að hafa ekki verið villtari. Ég var í vinnu og ég var taugaóstyrk. Ég sat úti í horni með bók og var ábyrgðarfull.“