Íslenska lagið átti betra skilið

Eurobandið á sviðinu í Belgrad í gærkvöldi. stækka

Eurobandið á sviðinu í Belgrad í gærkvöldi. Reuters

Blaðamaður danska blaðsins Berlingske Tidende segir í dag, að fjögur lög hafi borið af í Eurovision söngvakeppninni í Belgrad í gær, þar á meðal íslenska lagið, sem hafi átt betra skilið en að lenda í 14. sæti. Danir gáfu Íslandi 12 stig í atkvæðagreiðslunni.

Thomas Søie Hansen segir raunar, að lögin í úrslitunum hafi verið óvenjulega góð að þessu sinni og hann er ekki vonsvikinn yfir því að danski söngvarinn Simon Mathew hafi endað í 15. sæti. Sú niðurstaða hafi verið fyllilega verðskulduð enda sýni nýleg sólóplata Mathew að hann sé slakur söngvari og enn verri lagasmiður.

Þá segir Hansen að það hafi verið sérstök ástæða til að gleðjast yfir lögum Grikkja, Bosníu-Herzegóvínu, Noregs og Íslands. Gríska lagið hafi verið það besta í keppninni og hefðu Grikkir sent betri söngkonu en Kalomiru til leiks hefðu þeir sigrað.

Lag Bosníu hefði ekki verið Eurovisionlegt heldur skemmtilega samsett. Lag Norðmanna hefði verið afar gott og söngkonan sömuleiðis.

„Síðast en ekki síst verður að hrósa Íslandi, sem í ár sendi klassískt eurudanslag til Belgrad. Það var þannig útsett að flytjendurnir hefðu getað veitt Aqua harða keppni þegar sú sveit var upp á sitt besta á 10. áratug síðustu aldar. Íslendingarnir áttu betri örlög skilið," segir Hansen.

Umfjöllun Berlingske Tidende

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is