Einsemd internetsins

Stúlkurnar Natalie Portman og Parminder Nagra horfa brotakenndar niður af …
Stúlkurnar Natalie Portman og Parminder Nagra horfa brotakenndar niður af veggnum á áhorfendur í Tate Modern listasafninu í London.

Rúmlega tveggja metra háar myndir Kristleifs Björnssonar af leikkonunum Natalie Portman og Parminder Nagra (sparkvissa stúlkan í Bend It Like Beckham) prýða nú veggi Tate Modern-listasafnsins í Lundúnum. Kristleifur hefur þó hvoruga stúlkuna hitt, myndirnar fann hann á internetinu, prentaði þær út í fjölmörgum bútum á A4-blöð og skeytti svo saman.

Myndirnar eru hluti af seríunni My Girls, en það eru fjórar seríur í þeirri seríu, hver tileinkuð einni leikkonu. Hinar stúlkurnar hans Kristleifs eru þær Shannyn Shossamon og Winona Ryder. En hvernig voru stúlkurnar valdar? „Það var frekar flókið ferli, en aðallega fór það eftir mínum eigin smekk á stelpum og því hvaða myndir ég fann af þeim á netinu.“

En hvernig breytist verkið við þessa aðgerð, hvernig verða þessar stolnu myndir hans? „Það að búta þær niður í A4-blöð breytir þeim sjónrænt en það sem breyttist mest er þó konseptið, af hverju ég geri þetta? Þetta fjallar um einsemd, internetið og einsemd, og það stingur kannski mest hvað þetta eru persónuleg verk þótt þau séu tekin af netinu.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes