Óttast að djarfar myndir af sér leki á netið

Anne Hathaway bregður á leik með Steve Carelli, sem hún …
Anne Hathaway bregður á leik með Steve Carelli, sem hún leikur með í myndinni um Smart spæjara. Reuters

Bandaríska leikkonan Anne Hathaway óttast að nektarmyndir af sér verði birtar á netinu. Hún sat fyrir á myndunum fyrir unnusta sinn fyrrverandi, Raffaello Follieri, en skildi við hann í júní í kjölfar aðildar hans að fjármálahneyksli.

Hathaway er einna kunnust fyrir leik sinn í The Devil Wears Prada. Umræddar nektarmyndir eru nú í vörslu bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, sem hefur undir höndum öll gögn frá Raffaello.

Fregnir herma að á einni myndanna sé hún ekki kædd í neitt nema netsokka. Slúðurveitan gawker.com segir að myndirnar muni birtast „eftir eina til tvær vikur.“

Hathaway er sögð hafa beðið bróður sinn að ná myndunum úr geymslu í Bronx þar sem Raffaello geymdi eitthvað af eigum sínum og Hathaway, en þegar til kom hafði FBI þegar haldlagt myndirnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg