Gjafmildi Oprah Winfrey

Oprah Winfrey
Oprah Winfrey Reuters

Bandaríski þáttastjórnandinn Oprah Winfrey er sú gjafmildasta af fræga fólkinu ef marka má nýjan lista Parade tímaritsins. Alls gaf Winfrey 50,2 milljónir Bandaríkjadala til mannúðarmála á síðasta ári auk þess sem hún stofnaði samtökin Oprah's Angel Network sem aðstoðar konur og börn sem búa við bágar aðstæður víða um heim.

Meðal þeirra sem komast á listann eru  Mel Gibson, Barbra Streisand og parið Brad Pitt og Angelina Jolie. Þau skötuhjú, Pitt og Jolie, eru í sjötta sæti listans en þau gáfu fórnarlömbum fellibyljarins Kataria í New Orleans 8,4 milljónir dala. Auk þess eyða þau jóladag í að aðstoða fólk sem býr við sára fátækt. Segir Jolie að það sé mikilvægt að börn alist upp við að lífið snúist ekki um hvað þau fái heldur um að sýna öðrum stuðning.

Gjafmildustu stjörnurnar samkvæmt Parade

1. Oprah Winfrey
2. Herb Alpert
3. Barbra Streisand
4. Paul Newman
5. Mel Gibson
6. Angelina Jolie and Brad Pitt
7.  Lance Armstrong
7. Michael Jordan
7. Eric Lindros
10. Rush Limbaugh

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg