Ásdís Rán fékk 10 síður í Max
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Ásdís Rán Gunnarsdóttir er heldur betur á milli tannanna á fólki í Búlgaríu um þessar mundir, og þá sérstaklega í höfuðborginni Sófíu. Þannig hefur hún komið fram í einum vinsælasta sjónvarpsþætti landsins, Slavi Show, tvö kvöld í röð, og þriðja heimsóknin í þáttinn bætist svo við í kvöld.
Eins og fram hefur komið er hún einnig í forsíðuviðtali í einu vinsælasta glanstímariti landsins, Max, sem kom út á miðvikudaginn, en inni í blaðinu er tíu blaðsíðna myndaþáttur tileinkaður Ásdísi.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er umfjöllunin um Ásdísi í Max afar vegleg.
Ásdís flutti nýverið til Búlgaríu ásamt eiginmanni sínum, knattspyrnukappanum Garðari Gunnlaugssyni, sem leikur með CSKA Sofia þar í landi. Að sögn Pavels Kolevs, blaðamanns sem tók viðtalið við Ásdísi fyrir Max, er hún þegar orðin mikil stjarna í Búlgaríu, og í raun mun þekktari en Garðar.
Myndasyrpa: Ásdís Rán vinsæl
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, fyrirsæta, er orðin mikil stjarna í Búlgaríu og á sér fjölmarga aðdáendur. Viðtal birtist við hana í tímaritinu Max og má hér sjá viðtalið eins og það kom Búlgurum fyrir sjónir.
Birtingardagur: Föstudaginn, 31. október 2008









