10 bestu hrollvekjurnar fyrir Hrekkjavöku

The Exorcist. Faðir Merrin hugsar sig um stuttu áður en …
The Exorcist. Faðir Merrin hugsar sig um stuttu áður en hann kemst augliti til auglitis við sjálfan djöfulinn. Ein magnaðasta mynd sögunnar.

A f einhverjum ástæðum njótum við þess að láta hræða úr okkur líftóruna. Í Bandaríkjunum hefur myndast hefð fyrir því að gefa út hrollvekjur á Hrekkjavöku, sem var í gær, en íslenskir skemmtistaðir kjósa að halda upp á hana í kvöld. Fyrir þá sem kjósa frekar að hanga heima er tilvalið að mæla með nokkrum frábærum myndum sem fá hárin til þess að rísa aftan á hálsinum. Athugið að myndirnar á þessum lista eru alls ekki fyrir viðkvæma.

The Exorcist (1973)

Vakti óhug og miklar deilur innan kaþólsku kirkjunnar þegar hún kom út og lifir enn sem ein besta hrollvekja allra tíma. Fékk Óskarsverðlaunin fyrir handrit sem skrifað var eftir bók sem studdist við blaðagrein um raunverulega atburði.

Texas Chainsaw Massacre (1974)

Vestur-Íslendingurinn Gunnar Hansen fer á kostum sem Leðurfés í þessari flugbeittu mynd sem fylgt var eftir með fjölda slappra framhaldsmynda. Engin þeirra hefur náð frumgerðinni í hrottaleik og óhugnaði.

Halloween (1978)

Þó svo að söguþráður myndarinnar tengist ekki Hrekkjavöku mikið lifir Jamie Lee Curtis í minnum manna sem ein af betri öskudrottningum áttunda áratugarins.

 The Shining (1980)

Uppbyggingin í þessu tímalausa meistarastykki Stanley Kubrick er stórkostleg. Tónlistin ein og sér er nóg til þess að gefa áhorfandanum gæsahúð. Þegar persóna Jack Nicholson missir loks vitið er ekki annað hægt en að spennast allur upp.

Evil Dead (1981)

Áður en Sam Raimi snéri sér nær alfarið að því að gera myndir um Köngulóarmanninn var hann þekktastur fyrir hryllingsmyndir sínar. Evil Dead er tímalaus klassík sem blandar andsetningu eins og í The Exorcist saman við Zombie-heima Night of the Living Dead eftir George A. Romero.

Scream (1996)

Hrollvekjumeistarinn Wes Craven komst aftur á kortið á tíunda áratugnum með því að endurvekja unglingahrollvekjuna. Tókst það vel upp að þær hafa verið vinsælar æ síðan.

Event Horizon (1997)

Ótrúlega óþægileg áhorfs en hér lokast áhöfn persóna Laurence Fishburne og Sam Neill í geimflaug á sporbaug um Júpíter, fjarri öllu lífi. Hljómar kannski ekki mjög ógnvekjandi en það sem gerir myndina svo óþægilega er hversu óáþreifanlegt hið illa afl sem hefur sest að í flauginni er. Það ræðst á áhöfnina á sálrænan hátt og truflar hana á geði. Vonleysið er algjört.

The Sixth Sense (1999)

Frumraun leikstjórans M. Night Shyamalan situr enn í mörgum. Ekki bara vegna þess hversu trúverðug Micha Barton var sem ælandi smástúlka heldur vegna frábærrar fléttu ógnvekjandi atriða. Sönnun þess að það þarf ekki tölvubrellur til þess að gera góða hryllingsmynd.

The Ring (2002)

Frábær endurgerð Gore Vebinski á samnefndri japanskri hryllingsmynd. Ein af fáum bandarískum endurgerðum sem geta talist betri en upprunalega útgáfan.

Saw (2004)

Fyrsta myndin í þessari vinsælustu hrollvekjuseríu allra tíma er einnig sú besta. Einfaldur söguþráður með frábærri fléttu sem skoðar siðgæði manna á ögurstundu. biggi@mbl.is
Texas Chainsaw Massacre. Fremur snyrtilegt veggspjald við afar blóðuga og …
Texas Chainsaw Massacre. Fremur snyrtilegt veggspjald við afar blóðuga og ógeðslega kvikmynd.
The Shining. Kubrick breytti sögu Stephen King á réttum stöðum.
The Shining. Kubrick breytti sögu Stephen King á réttum stöðum.
Evil Dead Myndin sem gerði Bruce Campbell að költ-hetju.
Evil Dead Myndin sem gerði Bruce Campbell að költ-hetju.
Event Horizon. Sam Neill fer á kostum sem hinn skuggalegi …
Event Horizon. Sam Neill fer á kostum sem hinn skuggalegi Dr. Weir.
The Ring. Þú deyrð sjö dögum eftir að hafa horft …
The Ring. Þú deyrð sjö dögum eftir að hafa horft á myndina.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes