Hent út vegna hundsins

Enrique Iglesias.
Enrique Iglesias. mbl.is

Rússneska tennisstjarnan Anna Kournikova hefur hent unnustanum til margra ára, söngvaranum Enrique Iglesias út af heimilinu. Hefur Iglesias staðfest að þau búi ekki lengur saman en þeim lenti heiftarlega saman vegna heimilisdýrsins. Um sex ár er síðan þau byrjuðu saman en sambúðin entist einungis í sex mánuði.

„Við bjuggum saman í sex mánuði en síðan henti hún mér út. Við rifumst og náðum sáttum en hún hleypir mér ekki heim á ný," segir Iglesias og bætir við að um fáránlegt rifrildi hafi verið að ræða um hund hans. Söngvarinn segist flytja heim um leið og Kournikova heimilar honum það.

Þrátt fyrir illdeilurnar ber Iglesias henni vel söguna. Segir Kournikova vera frábæra, fallega, sjálfstæða og stórkostlega í samtali við Hello tímaritið.

Enrique, sem er sonur söngvarans Julio Iglesias, er orðinn svo örvæntingarfullur yfir sambandsslitunum að hann er farinn að tala um hvort hjónaband sé það sem næst er á döfinni hjá honum og tennisspilaranum. 

Anna Kournikova
Anna Kournikova AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes