Obama hvattur til að hætta að reykja

Verður Obama reyklaus forseti? stækka

Verður Obama reyklaus forseti? JEFF HAYNES

Ljóst er að mikið mun mæða á Barack Obama þegar hann tekur við embætti forseta Bandaríkjanna í janúar og bindindissamtök hafa nú bætt gráu  ofan á svart með því að leggja fast að honum að hætta að reykja í eitt skipti fyrir öll.

Samtök, sem berjast gegn reykingum, hafa hvatt Obama til að venja sig algerlega af tóbakinu og sýna þannig landsmönnum að allt sé mögulegt í Bandaríkjunum. „Nýkjörni forsetinn er í aðstöðu til að hjálpa fólki að skilja að það er erfitt að hætta að reykja og til að hvetja 43 milljónir  reykingamanna í Bandaríkjunum til að fara að dæmi hans,“ sagði Cheryl Healton, formaður samtaka sem beita sér gegn reykingum meðal ungs fólks.

Í nýlegu sjónvarpsviðtali kom fram að Barack Obama hefur átt í erfiðleikum með að hætta að reykja. Sjónvarpsmaðurinn Tom Brokaw spurði Obama að því hvort hann væri alveg hættur að reykja og sagði hann hafa komið sér hjá því að svara þeirri spurningu í öðru viðtali. Obama svaraði að hann hefði hætt en bætti við: „Ég sagði að stundum hefði ég átt það til að falla.“

„Bíddu nú aðeins,“ sagði þá Brokaw. „Þetta þýðir að þú ert ekki hættur.“

„Það má segja það,“ svaraði Obama. „Ég myndi segja að ég hafi staðið mig vel miðað við aðstæður við að lifa miklu heilsusamlegra lífi. Og ég tel að þið eigið ekki eftir að sjá brot á þessum reglum í Hvíta húsinu,“ sagði hann og skírskotaði til þess að reykingar hafa verið bannaðar í Hvíta húsinu.

Mörgum þótti þetta loðið svar því Obama lofaði ekki að hætta að reykja utan Hvíta hússins. Og hann sagði ekkert um hvort hann kynni að reykja í laumi í Hvíta húsinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is