Dómari í Bandaríkjunum úrskurðaði á Þorláksmessu að Jamie Spears, faðir söngkonunnar Britney Spears, beri að fá launahækkun vegna þess hversu vel honum hefur tekist að stjórna lífi dóttur sinnar en Jamie var falin forsjá hennar eftir að hún var úrskurðuð ósjálfráða í febrúar. Þetta kemur fram á fréttavef Sky.
Launahækkunin nemur tæplega tveimur milljónum íslenskra króna á mánuði og er afturvirk. Áður hafði Jamie fengið andvirði rúmlega einnar milljónar króna á mánuði fyrir að sjá um mál dóttur sinnar.
Auk umræddra launagreiðslna fær Jamie greiddan rekstrarkostnað vegna skrifstofu sinnar úr sjóðum Britney.