Bandaríski rokkdúettinn White Stripes mun rokka á ný eftir nokkurt hlé. Sveitin hefur ekkert leikið á hljómleikum frá árinu 2007 þegar hún varð að aflýsa tónleikum í Bretlandi og í Bandaríkjunum.
Íslandsvinirnir Jack og Meg White munu koma fram í spjallþættinum Late Night With Conan O'Brien, sem er sýndur á sjónvarpsstöðinni NBC, föstudaginn 20. febrúar.
Hljómsveitin varð að hætta við tónleikana á sínum tíma vegna þess að Meg White, sem leikur á trommur, fékk mikið kvíðakast.
Árið 2003 var hljómsveitin gestur hjá Conan O'Brien í heila eina viku og lék undir hjá spjallþáttastjórnandanum.
Jack og Meg White sáust síðast opinberlega saman í fyrra þegar Meg hljóp upp á svið þegar Jack lék á tónleikum með hliðarverkefni sínu, The Raconteurs. Hún tók hins vegar ekki lagið með þeim.