Óskarsmyndir eiga erfitt uppdráttar

Það er ekki nóg að vera Óskarsverðlaunamynd þegar kemur að íslenskum kvikmyndahúsum stækka

Það er ekki nóg að vera Óskarsverðlaunamynd þegar kemur að íslenskum kvikmyndahúsum MIKE BLAKE

Það er nú varla hægt að halda því fram að Íslendingar séu í miklum Óskarsverðlaunagír þessa dagana ef marka má lista yfir tekjuhæstu kvikmyndir helgarinnar.

Í fyrsta sæti er að finna gamanmyndina He's Just Not That Into You en reikna má með að meirihluti þeirra tæplega 5.000 bíógesta sem sóttu kvikmyndina um helgina hafi verið kvenkyns. Myndin skaust beint á toppinn og hafði um 1.000 miða forskot á næstu mynd, Beverly Hills Chihuahua sem var víst ekki tilnefnd til Óskarsverðlaunanna sem veitt voru á sunnudag. Í þriðja sæti er hins vegar að finna sigurvegara þeirrar hátíðar, Slumdog Millionaire. Myndin sigraði í átta af þeim ellefu verðlaunaflokkum sem hún var tilnefnd í og rúmlega 24 þúsund Íslendingar hafa nú séð myndina. Reikna má með að aðsóknin aukist í kjölfar árangursins vestra.

Þar fyrir neðan er svo að finna aðra Óskarsverðlaunamynd, The Curious Case of Benjamin Button, sem Brad Pitt leikur í en myndin hlaut þrenn verðlaun í fyrradag þar á meðal fyrir bestu tæknibrellurnar. Tæplega 10 þúsund manns hafa séð myndina sem margir hafa líkt við Forrest Gump.

Milk kemst ekki inn á lista

Í fimmta sæti er svo að finna nýjustu mynd Daniels Craigs, Defiance, sem frumsýnd var um helgina. Kvikmyndin fjallar um hóp pólskra gyðinga sem veita nasistum andspyrnu í síðari heimsstyrjöldinni.

Fríður flokkur leikara kemur að myndinni. Steve Martin er svo staddur í sjötta sæti í annarri mynd sinni sem rannsóknarlögreglumaðurinn Clouseau. Myndin var frumsýnd um helgina og fékk rúmlega milljón í aðgangseyri. Þá má benda á að Óskarsverðlaunamyndin Milk kemst ekki inn á topp 10 listann.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

  • Vilborg Anna Garðarsdóttir
    Vilborg Anna Garðarsdóttir MILK
Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is