Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 8.5.2009
| 22:30
Ástarverkfall olli streitu
Kenýamaðurinn James Kimondo hefur höfðað mál gegn aðgerðasinnum sem hvöttu konur til að mótmála stjórnmálaástandinu í landinu með því að neita eiginmönnum sínum um ástarleiki. Segist hann hafa þjáðst af ,,angist, streitu, bakverk og skorti á einbeitingu" vegna bannsins.
Kimondo sagði að samtökin Þróun kvenna hefðu ,,gripið inn í hamingjusamt hjónaband hans" og krafðist skaðabóta sem ekki hafa verið nákvæmlega tilgreindar.
Ekki er ljóst hve margar konur tóku þátt í ástarverkfallinu sem lauk á miðvikudag, að sögn BBC. Eiginkona Raila Odinga forsætisráðherra studdi verkfallið og sagði að stjórnmálamenn væru að hundsa þarfir venjulegra borgara með þrætum sínum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









