Fjölskylda Carradine í uppnámi vegna ljósmynda

David Carradine sést hér með bandaríska leikstjóranum Quentin Tarantino, sem …
David Carradine sést hér með bandaríska leikstjóranum Quentin Tarantino, sem leikstýrði þeim fyrrnefnda í Kill Bill myndunum. Reuters

Fjölskylda bandaríska leikarans David Carradine segist vera í miklu uppnámi eftir að ljósmyndir voru birtar af líki leikarans í taílensku dagblaði. Lögreglan telur að um myndir frá tæknideild lögreglunnar sé að ræða og að þeim hafi verið lekið í fjölmiðla.

Keith Carradine, hálfbróðir leikarans, hefur hótað málsókn verði brotið gegn friðhelgi einkalífs fjölskyldunnar.

Þá hefur hann óskað eftir því að bandaríska alríkislögreglan (FBI) rannsaki málið.

Lík David Carradine fannst í hótelherbergi í Bangkok sl. fimmtudag. Lögreglan segir að hann hafi verið nakinn með reipi bundið um hálsin á sér.

Myndirnar, sem birtust í taílenska dagblaðinu, eru sagðar sýna lík leikarans í hótelherberginu.

Dánarorsökin liggur enn ekki fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes