Morrisey yfirgaf sviðið í Ósló

Morrisey var ekki ánægður með sendinguna sem kom fljúgandi uppá …
Morrisey var ekki ánægður með sendinguna sem kom fljúgandi uppá svið í Ósló.

Söngvarinn Morrisey brást ókvæða við er áhorfandi henti í hann plastglasi fullu af bjór á tónleikum í Ósló á föstudaginn. Hann stöðvaði tónleikana og spurði hvort áhorfendur myndu vilja vera svo vænir að kýla viðkomandi í andlitið og yfirgaf síðan sviðið.

Morrisey var í miðju lagi, Girlfriend in a coma sem hann sló í gegn með Smiths á sínum tíma þegar bjórglasið kom fljúgandi. Morrisey þurrkaði ölið framan úr sér og messaði yfir hópnum. „Þetta hefur aldrei komið fyrir áður, hefðum við kannski ekki átt að koma til Óslóar?" spurði söngvarinn sár og fór fram á að ljósin í salnum yrðu kveikt og hinn seki fundinn.

Eftir stutt hlé, kom síðan hljómsveitin aftur á svið og tónleikarnir héldu áfram eins og ekkert hefði í skorist.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes