Hjónaband Jackson sýndarmennska

Debbie Rowe

Debbie Rowe mbl.is

Debbie Rowe, fyrrum eiginkona og barnsmóðir poppstjörnunnar Michael Jackson, er sögð staðhæfa að hann hafi ekki verið líffræðilegur faðir tveggja barna þeirra Prince Michael 12 ára og Paris 11 ára. Þá er haft eftir henni að hjónaband þeirra hafi ekki verið annað en sýndarmennska.  

„Michael var fráskilinn, einmana og langaði í börn. Það var ég sem sagði við hann: 'Ég skal fæða þér börn,” segir Rowe í viðtali við blaðakonuna Rebecca White:  „Ég bauð honum móðurlíf mitt. Það var gjöf. Þetta var hlutur sem ég gerði til að veita honum hamingju. Ég var bara ílát og sæðið var ekki frá Michael. Mér var borgað fyrir þetta og ég hélt áfram lífi mínu.” 

Rowe, sem var gift Jackson frá árinu 1996 til 1999, segist ekki eiga von á því að sjá börnin aftur þrátt fyrir lát föður þeirra í síðustu viku. „Ég var aldrei góð móðir. Ég tengdist þeim aldrei. Mér leið betur með að láta hann hafa þau en að halda þeim sjálf,” segir hún. 

Þá staðhæfir hún að þau hafi ekki lifað kynlífi á meðan á hjónabandi þeirra stóð. „Hann vildi láta líta út fyrir að við værum fjölskylda en við bjuggum aldrei saman sem hjón. Við stunduðum aldrei kynlíf."  Rowe segir hjónabandi þeirra hafa lokið þegar ljóst varð að hún gæti ekki fætt fleiri börn eftir erfiða fæðingu Paris.

„Fæðingin var svo erfið. Ég var öll rifin að innan og ófrjó. Þegar hann frétti að ég gæti ekki átt fleiri börn kærði hann sig ekkert um mig lengur," segir hún. Michael lætur einnig eftir sig þriðja barnið en aldrei hefur verið gefið upp hver móðir þess er.

Michael Jackson

Michael Jackson Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Drottning á ferð og flugi

Elísabet drottning brosir út að eyrum þessa dagana.
19:04 Elísabet Bretlandsdrottning verður á ferð og flugi um konungsveldið í fimm mánuði í tilefni af því að sextíu ár eru nú liðin frá krýningu hennar. Meira »

Lögreglumaður í leit að sjálfum sér

Eftirlitsmyndavélar geta verið gagnlegar.
16:50 Breska lögreglan notast mikið við eftirlitsmyndavélar við störf sín. Á dögunum var lögreglumaður sem var að fylgjast með skjánum var við grunsamlegan mann. Lögreglumaðurinn hafði samband við lögreglumann sem var nálægur og bað hann um að svipast um eftir honum. Leitin tók enda eftir um 20 mínútur þegar lögreglumaðurinn áttaði sig á að hann var að leita að sjálfum sér. Meira »

Fyrstu tónleikar Sigur Rósar í fjögur ár

Sigur Rós í Laugardalshöllinni.
17:32 Sigur Rós ætlar að koma fram á tónlistarhátíðinni Bestival á Englandi í september og eru þetta fyrstu tónleikar sveitarinnar í næstum fjögur ár. Meira »

Glæpamennirnir halda sig inni

Vopnaður lögreglumaður stendur vaktina við öryggisfangelsi í kuldanum í Belgrad, höfuðborg Serbíu.
16:40 Mikið kuldakast hefur verið í Serbíu að undanförnu með tilheyrandi snjóþunga. Veðrið hefur ekki aðeins haft áhrif á líf almennra borgara því glæpamenn hafa haft frekar hægt um sig í vetrarfærðinni. Ríkisstjórn landsins hefur greint frá því að glæpatíðnin hafi dregist saman um 40% að undanförnu. Meira »

finnur.is